Prófíll

  • Nafn: Herdís Eva Hermundardóttir
  • Staður: Hafnarfjörður

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

2. blogg eftir rykdustið

22. janúar 2008 klukkan 12:24
Jæja ég er bara að standa við það sem ég segi, alveg að blogga annað bloggið :P

En annars eitt merkilegt að gerast í dag, við Hörður erum að fara að hengja upp myndir svona loksins, en við getum samt ekki gert það ein þar sem að við fáum bróður hans til að hjálpa okkur, það er nefnilega betra að fá einhvern vanan í girni og öngla upphengingum til að gera þetta fyrir sig.
Ég samt gerði heiðarlega tilraun til að reyna að setja upp myndir einhvern tíman löngu fyrir jól, jújú ég festi önglana við snærið og svo ætlaði ég að fara að vippa þessu upp á vegg og fattaði að öll böndin voru svo rosalega misstór að ég hætti við og krækti öllum önglum allstaðar í mig í staðinn. Hef bara ekki lagt í þetta aftur.
En við fórum að prenta út myndir í rammana sem við erum búin að eiga síðan í september og hafa staðið óhreyfðir :P. Við vorum búin að mikla þetta eitthvað svo svakalega fyrir okkur en svo tók þetta bara smá stund og kemur svaka vel út í römmunum, þá er bara að finna stað fyrir þetta á veggnum.

Skólinn er bara samur við sig, 3 fög af 4  eru alveg ágæt en það síðasta er horror, eða kennarinn í því er horror. Þetta er semsagt lífræn efnafræði L. Kennarinn væri örugglega fínn ef að hann hefði ekki fengið heilablóðfall fyrir tveimur árum og byrjaði að kenna ári eftir það , semsagt kenndi hann á vorönn í fyrra líka. Eitthvað hefur kennarlistin farið út þar sem að hann kemur engu til skila og ég græði jafnmikið á því að vera í tíma hjá honum og að sitja heima í tölvunni að gera ekki neitt. En annars eru hin fögin í lagi og hef ég fulla trú á að ná þessu, svona allavega ennþá þó að ég þori varla að líta á hvað bækurnar eru þykkar þá er þetta í lagi. Einnig þarf ég kannski að fara að bæta mig "aðeins" í lærdómnum þar sem að ekkert gengur, ég ákveð á mánudegi að ég ætli að vera dugleg um helgina, síðan líður öll vikan og ég geri ekkert og svo helgin og ég geri ennþá ekkert, þetta bara er ekki alveg að ganga því að ég er nú þegar komin ansi langt á eftir. :P

Annars er ég síðan búin að vera eitthvað veik, eða með hálsbólgu og svo bættist kvef ofan á það fyrir nokkrum dögum. Fyrst var þetta bara svona smá hálsbólga og svo fór ég að verða raddlaus sem er búið að standa yfir í marga daga. Svo tala ég ekki í smá tíma og opna síðan munninn og það koma bara gól og óhljóð út úr mér með svona þögnum inn á milli, ekki sérlega gaman þegar maður þarf að spyrja kennarana að einhverju eða aðra nemendur hehe :P.

Annars var allt annað gert um helgina en að læra, fór með Herði, Elísu og Týru í smá bíltúr, Týra fékk að sitja í aftursætinu í bílnum hans Harðar í bílbelti, rosalega óvenjulega stillt eitthvað. Síðan lögðum við af stað á þessum hrikalega lága bíl í öllum snjónum. Ákváðum að fara að Kleifarvatni sem er aðeins utan við Hafnarfjörðinn, vegurinn var alveg ágætur þangað til að við vorum komin framhjá bláfjallaafleggjaranum, þá fór þetta svona aðeins að versna og fórum við þá að leika smá snjóplóg. En eftir smá tíma snerum við við þar sem að það var bara ófært fyrir svona lága bíla, rosalega djúp hjólför og hrikalega mikill snjór. Jæja við snerum við og fórum þá bara bláfjallaafleggjarann. Komumst langleiðina en vorum síðan stoppuð af einum sem var að koma þaðan og okkur sagt að halda ekkert áfram, þannig að við funduð bara ágætan stað til að stoppa á þarna í miðri brekku og fórum út að leika okkur í snjónum :P, Týra er alveg rosalega hrifin af snjó en þetta var víst einum of þar sem að hún dreif ekki neitt og sat oft föst í snjóskafli hehe :P

En jæja ég ætti kannski að fara að læra eitthvað því að ekki veitir af í öllum þessum fögum :P
Herdís Eva Hermundardóttir
Engin athugasemd

Dusta rykið af þessu bloggi :P

15. janúar 2008 klukkan 21:00
Jæja hafði ekkert að gera (utan við að læra helling) og ákvað að dusta rykið aðeins af þessu bloggi mínu sem er búið að standa svo til óhreyft í um ár sem er nú ansi langur tími og margt hefur nú gerst á þessu eina ári.

Það gerðist nú ekki mikið síðasta sumar eftir síðasta bloggið mitt, var bara að vinna og slappa af. Fór reyndar í eitt ferðalag á Vestfirði og var það nú bara ansi gaman, en svo fór að rigna og þá var ekki eins gaman :P. Ekki gaman að vera í tjaldi í rigningu marga daga í röð þannig að heimferðinni var flýtt aðeins :).

Svo í haust ákvað ég að reyna aftur við skólann þar sem að ég tók mér frí eftir áramót í fyrra. Ég byrjaði bara í tveimur fögum og var það hrikalega þægilegt. Fór í áfangann sem ég kláraði ekki og svo einn af öðru ári bara. En eini ókosturinn við að vera bara í svona fáum fögum er sá að maður nennir ekkert að læra, maður hugsar bara að maður hafi nægan tíma fyrir þetta allt og skippar þessu alltaf lengur og lengur sem er ekki sniðugt, enda vaknar maður rækilega í endaðan nóvember og fattar að maður hafi ekki verið svo svakalega duglegur að læra og það bara í tveimur fögum hehe :P. En prófin gengu vel þrátt fyrir svartsýnisspár mínar eftir þau þar sem að þau voru aðeins erfiðari en ég bjóst við :P.

Eitt enn gerðist í haust en það var að minn kæri græni bíll eyðilagðist, var á leið upp í grafarvog þegar ég fékk einn hressilega aftan á mig og minn bara í klessu, keyptur út af Tryggingafélaginu og við Hörður því bara á einum bíl sem er reyndar bara fínt, minni bensínkostnaður og minni tryggingar. Svo var minn bíll ekkert í svaka góðu standi lengur, þurfti að fara að laga ýmislegt, en hann seldist á alveg um 70 þús í uppboðinu og sá hefur keypt köttinn í sekknum hehe :P, enda ekkert heilbrigður bíll á ferð.

En það var nú ekki það eina sem gerðist í haust samt, við Hörður fluttum á stúdentagarðana og líkar rosalega vel, en það er ótrúlegt hvað maður getur eytt í húsgögn og svoleiðis. Við keyptum okkur rosalgea fínan lazyboy sófa, svo var keypt rúm, og eldhúsborð og fleira, hægt að týna endalaust til hehe :P. Síðan fannst mér eitthvað svo dýralaust hérna enda vantar Týru mína að ég ákvað að núna skyldi ég fá mér fiskabúr þar sem að ég tel að það sé í lagi að hafa þá hérna þó að engin dýr séu leyfð. Það er nú ekki eins og það heyrist hátt í þeim eða að þeir séu skítandi á lóðina :P. En þá þurfti náttúrulega að kaupa búrið, fiska og búrið þurfti að standa á einhverju þannig að kaupa þurfi kommóðu undir sem var nú ekki alveg sátt við þyngdina í fyrstu þannig að við keyptum auka plötu undir enda ekki gaman af fá 60 L af vatni í gólfið.

Jólin voru alveg svakalega fín, Hörður var hjá foreldrum sínum samt en ég hjá mínum. Síðan fékk maður góðan mat og nammi sem maður hefur alls ekki gott af. En annars fékk maður ýmislegt í búið, eins og hrærivél, brauðrist og fleira.

Núna eftir áramót einblíni ég á að reyna að klára þessi 4 fög sem ég er skráð í, sýnist alveg hrikalega óyfirstíganlegt en þetta hefst örugglega allt að lokum enda þarf maður bara að fara að taka sig á í lestrinum og reyna að drífa þetta af. Það er bara hægara sagt en gert þar sem að maður vill alltaf gera allt annað en að læra.

En rosalega er ég búin að komast að því að það er ekkert sérstaklega gaman að vaska upp enda treinum við Hörður það oftast fram á síðustu stundu sem er þegar ekkert leirtau er hreint :P En það er einmitt svo svakalega óviturlegt þar sem að þá er bara miklu meira að vaska upp í einu og maður nennir síður að fara að byrja á því.

En jæja þetta er orðið alveg hrikalega langt blogg sýnist mér og maður ætti kannski að fara að slútta þessu, bæti kannski einhverju við seinna ef að mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug. Og núna ætla ég að reyna að blogga meira enda bara í skólanum :P
Herdís Eva Hermundardóttir
2 athugasemdir

Dýragarður og fleira :)

07. apríl 2007 klukkan 21:10

Jæja nokkrir dagar síðan síðasta blogg kom inn Hissa


4. apríl fórum við í smá lestarferð út fyrir bæinn, ákáðum nefnilega að fara í Burlöw center sem er verslunarmiðstöð í litlu bæjarfélegar (held ég) nokkrum km frá Lund, eða mér finnst það þar sem að við vorum ekki lengi að ferðast á milli með lestinni hehe Ullandi.
 

Við fórum í þessar helstu búðir eins og Hm og svoleiðis og svo var bara labbað aðeins þarna um, við vorum samt ekki svo lengi þarna þar sem að þetta er ekkert svakalega stór verslunarmiðstöð og þetta er víst það eina sem hægt er að skoða í þessum bæ Ullandi og ég held því að þetta sér lítill bær hehe Ullandi. Svona af því að verslunarmiðstöðin er aðalpunkturinn þarna. 
 

Minnir að við höfum ekki gert neitt meira merkilegt þann dag, bara spilað og haft það notalegt heima.
 

5. apríl fórum við í annað bæjarfélag sem var í hina áttina frá Lund. Þar fórum við með strætó og fórum fyrst í svona íþrótta Outlet. Ekkert smá mikið til af allskonar jökkum og svoleiðis. Og allt eiginlega á hálfvirði, svona dót sem var í tísku fyrir ári hehe Ullandi. Ég var að spá lengi í því hvort að ég ætti að kaupa einn flottan vindjakka sem kostaði 600 sænskar, eftir langa umhugsun ákvað ég að slá til enda er svona jakki mikið dýrari heima. Ég sé ekki eftir því að hafa keypt hann þar sem að hann hefur svo reynst vel síðustu tvo daga hehe Ullandi. Annars var þessi dagur mjg svipaður fyrri deginum þar sem að við slöppuðum eiginlega bara af restina af deginum, vorum að horfa bara á 4400 og svoleiðis. Við erum orðin alveg húkt á þessu, horfum bara á 2-3 þætti í einu enda að verða búin með seríuna sem er reyndar bara um 11 eða 13 þættir. 
 

6. apríl: 
Dýragarðsferðin mikla.


Jæja eins og titillinn segir þá fórum við í dýragarðinn í Kaupmannahöfn. Við þurftum náttúrulega að taka lest og svoleiðis vesen. Lestarferðin er dýr, því að við þurfum að fara yfir þessa brú. En við fórum svo af stað, rosalega gaman að ferðast með lestinni hehe Ullandi, en ekki gaman að fara í gegnum göng, rosalegar hellur sem maður fær þá Hissa


Jæja við komum svo í Kaupmannahöfn , þar var frekar kalt eða okkur fannst það allavega. Svo voru allir svangir þannig að fyrsta sem við gerðum þar var að kaupa eitthvað að borða í svona “10/11” búð sem er ekkert sú ódýrasta. Tókum líka með nesti í garðinn enda alvitað að svona garðar okra á öllum mat. 
 

Við tókum svo strætó á leiðarenda og það sem blasti við okkur var endalaus röð Hissa, en hún gekk samt alveg rosalega hratt. Og við komumst svo inn í garðinn. Held að það hafi verið svona rosalega margir þar sem að það eru páskarnir og þetta var akkúrat á skírdag og opið líka lengur í garðinum og svoleiðis. Ekkert skrítið þó að margir nýti sér tækifærið. Enda sáum við líka marga Íslendinga, eða heyrðum í þeim með öðrum orðum.
 

Við byrjuðum bara svona að labba um garðinn, sáum alveg helling af dýrum. Bavíanarnir voru samt alveg hrikalega skemmtilegir. Þeir voru svo rosalega fjörugir og mikið af ungviði sem var alltaf að leika sér. Svo þegar hávaðinn var orðinn of mikill fyrir stóra karldýrið þá kom það rétt fram öskraði eitthvað og allt varð rosalega rólegt. Skrítið að sjá þetta. Allir litlu ungarnir fóru til mömmu sinnar og svoleiðis. 
  

Svo fórum við að skoða leðurblökurnar og fullt af skriðdýrum, rottum og broddgöltum sem voru í svona myrku herbergi. Fyndið með rotturnar að þær voru látnar vera í svona skólplagnaumhverfi hehe Ullandi Við sáum svo ísbirni sem voru bara þarna rétt þegar við komum en fóru svo að fela sig og vildu ekki koma fram aftur, svo voru þarna birnir, einn sem lá bara sofandi en svo var þarna birna með húna held ég. Hún vildi ólm sýna sig og fór upp á drumb og stóð á afturfótunum. Rosalega sýning hjá henni hehe Ullandi
 

Við fórum svo að skoða úlfana, uglu, lamadýr, fíla og fleira. Fórum svo inn í fílahúsið og vorum þar dágóða stund. Það var svo einn fílsungi þarna sem er fæddur sama mánaðardag og Hörður, bara 2006 í stað 1983 Ullandi. Svo var einn þarna sem var stór kallfíll, hann var búinn að vera þarna í næstum því 50 ár. Maður vorkenndi þeim/honum að vera þarna inni í svona litlu rými, er örugglega ekki gaman. Svo voru þarna mikið fleiri dýr, maður varð sko ekki fyrir vonbrigðum með dýrafjölda í þessum garði annað en á Spáni, maður varð fyrir rosalegaum vongrigðum þar í Terra Natura, fannst vera rosalega fá dýr þar. 
 

Ljónin í garðinum voru samt ekki skemmtilegt, þau kunna örugglega á þetta og snúa sér allstaðar frá áhorfendum, þannig að maður náði eiginlega engum myndum af þeim að framanverðu, meira svona einhverjar rassamyndir. Annars voru svo þarna Okapi sem er skrítið dýr, eins og hálfur sebrahestur og hálfur eitthvað annað hehe Ullandi, svo voru þarna venjuleg húsdýr eins og geitur, kýr og svoleiðis og allskonar hestategundir. Litlir hestar og meiri segja íslenskir hestar sem eru kallaðir pony hestar, finnst það svo skrítið enda er íslenski hesturinn ekkert svakalega lítill hehe Ullandi
 

Við fórum svo inn í eitthvað hús þarna þar sem að maður labbaði bara inn í regnskóga veröld, rosalega rakt og heitt. Fuglar fljúgandi þarna út um allt og á jörðinni voru (áttu að vera) eðlur, froskar, skjaldbökur og svoleiðis en við sáum aldrei eðlur eða froska hehe Ullandi og það sem mér fannst skemmtilegt var að lengst upp í loftinu voru letidýr Hlæjandi rosalega flott dýr og hægfara hehe Ullandi fannst ótrúlegt að þau voru þarna. 
 

Eftir þetta hús var svona gangur með allskonar skriðdýrum og svoleiðis og eftir þann langa gang þá komum við inn í fiðrildahús sem var með sama loftslagi, svona heitt og rakt. Myndavélin hans Harðar var meiri segja smá stund að jafna sig í fyrra húsinu, kom bara móða og vesen hehe Ullandi. En annars voru þarna risafiðrildi fljúgandi bara í kringum mann, mjög sérstakt. Og eitt sem var svolítið skondið. Það voru þarna svona einhversskonar kúlur með safa rugglega og búið var að stinga svona gerviblómum ofan í til að safinn kæmi upp held ég. Þetta var svona eins og statífin undir kertum á afmæliskökum er hehe Ullandi. Ég var ekkert að spá í þessu fyrst, ekki fyrr en Sigrún fór eitthvað að skoða þetta betur Ullandi og svo voru þessi “blóm” allskonar á litin, bleik og blá og svoleiðis. 
 

Eftir þetta var ekki mikið sem við áttum eftir að skoða, bara rétt nokkur dýr og svo var haldið af stað heim, þar sem að garðurinn var hvort sem er að loka þarna. Mörg dýr komin inn og svoleiðis. Við rétt náðum strætó. Strætóinn var nefnilega kominn hinum meginn við götuna og var að taka upp farþega en við vorum föst hinum meginn með rauðan kall á móti okkur Hissa, en þegar engin umferð var stálumst við bara yfir götuna og fleiri gerðu það enda fleiri en við sem vorum að missa af strætó hehe Ullandi
 


Við vorum að spá í að fara á strikið, en það var allt lokað þar vegna þess að það var Skrídagur þannig að við ákváðum frekar að ná lest og komast fyrr heim frekar en að þurfa kannski að bíða endalaust eftir lest seinna. Við fórum til Malmö og þurftum að skipta um lest þar, við vorum ekkert smá heppin þá, lestin sem átti að fara til Lund seinkaði nefnilega og við náðum henni rétt svo með miklum hlaupum sem voru að gera út af við mig Ullandi, það sýnir hvað ég er ekki með mikið þol. Ullandi


Við komumst svo heim og þá tók hjólið við, það er erfitt að hjóla heim þegar maður er búin að vera að labba allann daginn. En heim komst maður og þá tók við pizzuát og sjónvarpsgláp = 4400 Ullandi (sem við horfum reyndar á í tölvu Ullandi ) ég var svo á móti þessum þáttum áður, fannst þeir algjört bull en núna er ég á allt öðru máli, finnst þeir bara hrikalega spennandi og skemmtilegir. 
 

7. apríl.
Fórum í dag að skoða dómkirkjuna, ekkert smá flott kirkja, hátt til lofts og frekar skringileg Ullandi . Það er nefnilega eitthvað altari og svo langar raðir frá því eru stólar sem Oddgeir sagði að væru víst fyrir munka (eða voru fyrir þá). Svo lengst fyrir neðan voru stólar fyrir “almúgann” Ullandi (eða allavega fannst mér það) . Skrítið skipulag á þessu. Svo voru náttúrulega einhverjur gangar svona til hliðar og svoleiðis. Engar smá byggingar á þessum tímum. Samt búið að enduræta þetta eitthvað. Oddgeir heldur að hún sé upprunalega frá 1600 eða eitthvað þar um bil. Svo hafa náttúrulega komið styrjaldir og svoleiðis í gegnum aldirnar.  

Við fórum svo að fá okkur ís svona áður en við lögðum í hann að verslunarmiðstöðinni Nova Lund. Fórum aðra leið en síðast og var þetta svona meira inn í íbúðarbyggðunum, götur með skrítið nöfn hehe Ullandi vefaragatan, smiðagatan og svoleiðis. Sem sé nefndar eftir iðngreinum eiginlega hehe Ullandi. En Oddgeir og Sigrún höfðu nefnt risa dýrabúð þarna rétt hjá Nova Lund. Við Hörður fórum að leita að þessu stóra græna húsi sem þau höfðu nefnt. Við byrjuðum að hjóla götuna, eins sem við sáum var risastór plöntusala sem btw var í risagrænu húsi Ullandi. Jæja þá höfðu þau bara séð stórt hús sem HEFÐI getað verið dýrabúð en tékkuðu ekkert meira á því Ullandi svolítið svekkjandi eiginlega Fýldur, en jæja maður verður bara að fara í dýrabúðir seinna þegar maður fer einhvern tímann aftur út.  

En annars verður bara slappað af það sem eftir er af kvöldinu, spilað og horft á 4400 held ég, en annars ætluðu vinkonur Oddgeirs og Sigrúnar að koma , þar sem að tvær af þeim eru að fara heim á morgun til Austurríkis. En þær hafa ekki sýnt sig ennþá en gera það kannski seint og síðar meir Ullandi.

En á morgun er stefnan tekin á að fara eitthvert, finna vindmyllu og snerta hana Óákveðinn ekki spyrja mig afhverju hehe Ullandi Oddgeiri og Herði langar svo rosalega að gera þetta, alveg ótrúlegt hehe Ullandi en hvort að þessi áæltun standist er ég ekki alveg viss um. Annars hef ég rosalega lítið annað að segja (enda búin að segja mikið Skömmustulegur)


En annars blogga meira seinna Brosandi 

Herdís Eva Hermundardóttir
2 athugasemdir

Gautaborg

03. apríl 2007 klukkan 13:45

Jæja þá er það annað bloggið frá Svíþjóð Ullandi


Jæja 1 apríl fórum við í verslunarmiðstöð hérna sem heitir Nova Lund, svolítið löng leið þangað enda er það í hinum enda bæjarins og förum við náttúrulega allt hjólandi, en við fórum reyndar niður margar “brekkur” þannig að þetta leit betur út en á horfðist Ullandi . Þar var síðan labbað aðeins um en samt togaði HM mest í Ullandi enda hægt að finna mikið af fötum þar á alla, og á góðu verði líka enda ekki dýr verslun. Ég gat allavega eytt um 8 þús kr þar Ullandi enda ekkert smá mikið úrval þarna af fötum. 

Við fórum svo að skoða þarna hjól í einhverri hjólabúð sem var við hliðina á Nova Lund. Nokkuð mikið af flottum hjólum en þau voru líka alveg svakalega dýr. En Oddgeir er nefnilega að spá í að kaupa sér hjóla fyrir heimferðina til Íslands, það hjól þarf að standast miklar kröfur Ullandi, einhver diskabremsur og svoleiðis þannig að það mun kosta um 100 þús íslenskar krónur held ég, eða allavega um það. Það er alveg slatta peningur Ullandi
 


Heimleiðin var svo allt öðruvísi en ég hélt, þar sem að við vorum eiginlega bara á niðurleið leiðina þangað þá hélt ég að við myndum bara fara upp leiðina heim, en við fórum einhverja allt aðra leið og var það því ekkert erfitt. Allavega ekki eins erfitt og ég hélt að það myndi verða Ullandi


Síðan um kvöldið gerði Sigrún einhverjar rice krispist súkkulaði kökur í svona muffins formi og aðra súkkulaði köku sem verður svona einhver drulla í miðjunni Ullandi, en ástæðan fyrir þessu var sú að Oddgeir átti afmæli og var von á þremur stelpum í heimsókn sem eru frá Austurríki held ég. Það var mjög fínt þó að maður hafi verið alveg út úr enda þekkir maður þær ekkert  Ullandi Síðan var farið alltof seint að sofa því að við þurftum að vakna kl 5 næsta morgun þar sem að við vorum að fara til Gautaborgar. 
 

Gautaborgarferðin Ullandi


Eins og ég sagði rétt áðan þá vöknuðum við kl 5 , þann 2. apríl. Það var svo sem ekki erfitt en hrikalega var maður þreyttur samt. Síðan var borðaður morgunmatur í miklum flýti þar sem að við þurftum að ná lest sem átti að fara um hálf 7 og við þurftum náttúrulega að hjóla alla leið niður í miðbæ, sem er um 5 km. Við komum bara mjög tímanlega á staðinn og þá hófumst við handa við að læsa hjólunum og var þeim læst öllum saman og svo við grindurnar og svoleiðis þannig að ef að einhver myndi vilja stela þessum “flottu” hjólum þá yrði það mjög erfitt hehe Ullandi 

Við fórum svo í lestina sem var rosalega fín,  stórt borð á milli sætanna sem sneru svona að hvoru öðru, sem var fínt þar sem að við vorum 4 Ullandi. Lestarferðin tók um 2 og hálfan tíma og á leiðinni sáum við flatt land Ullandi. Það eru bara fullt af trjám og bóndabæjum en ekki eitt einasta fjall. Held að ég hafi séð eitt fjall hérna sem var heldur ekki stórt, það var rétt hjá Gautaborg.
 Annars komumst við á leiðarenda og fórum að leita að korti af bænum sem við fundum ekki á staðnum sem var bent á heldur var það inní verlsunarmiðstöðinni sem við fórum beint í af lestarstöðinni. Þar var náttúrulega ekkert opið nema Mcdonalds og eitthvað svoleiðis þannig að við fórum bara út að skoða okkur um og það er HELLINGUR af Mcdonalds þar.

Allavega þar sem að við vorum þarna í miðbænum, þetta var á hverju götuhorni og svo HM við hliðina á hehe Ullandi Við fengum okkur svo að borða og fórum að skoð aí búðirnar í verslunarmiðstöðinni sem við fórum fyrst í. Fundum náttúrulega fullt af HM búðum og svoleiðis.
Síðan nenntum við ekki að vera þarna á sama pleisinu allann tímann og fórum að labba þarna í kring sem var mjög gaman þó að það sé ekki mikið að sjá þarna annað en einhverja Mcdonaldsstaði og HM.

Síðan þurfti fólk að fara á klósettið og það kostar bara 50 kr (íslenskar) fyrir einn að pissa Óákveðinn ekkert smá, og það á kannski mjög skítugu klósetti. Okkur fannst þetta frekar asnalegt þannig að við svindluðum aðeins á þessu og fórum bara öll fyrir þennan 50 kall hehe Ullandi þannig að við fórum öll á kallaklósettið.
 


Annars kíktum við í fullt af ljósmyndabúðum fyrir Hörð, en fundið ekki neinsstaðar þessar linsu sem hann var að spá í. En hann hafði samt séð þetta einhversstaðar þarna á minnsta verðið sem hann hefur séð. Þannig að við kíktum  á kortið sem hann hafði prentað út og þar stóð ekki Gautaborg heldur einhver allt annar staður þannig að við ákváðum að fara í smá ferð út fyrir bæinn og kíkja á þessa búð. Keyptum okkur strætómiða og svoleiðis og héldum af stað, og svo til að taka það fram þá fórum við ekkert út fyrir Gautaborg hehe Ullandi þessi staður er eins og bara eitt hverfi í Gautaborg. En jæja við vorum orðin svolítið svöng og keyptum okkur pizzu áður en við færum að leita að búðinni. Við náttúrulega pöntuðum okkur bara eins manns pizzur því að það er víst bara svoleiðis eiginlega hérna í Svíþjóð. Svo kom pizzan og þvílík stærð á eins manns pizzum Hissa, þetta var aðeins minna en 15” pizza heima sem dugar léttilega fyrir tvo, en ótrúlegt en satt þá náðum við að klára meirihlutann af þessum pizzum enda eru þessar pizzur MJÖG þunnbotna. Ég og Höður kíktum svo í dýrabúð þarna rétt hjá pizzastaðnum, sáum þarna rosalega skrítin skordýr í búrum sem voru rosalega felulituð, litu alveg eins út og þurrkuð laufblöð sem voru þarna í kring. Þannig að við fyrstu sýn sást ekkert í búrinu annað en þurrkuð laufblöð hehe Ullandi


Við fórum svo að leita þarna í kring að þessar ljósmyndabúð, við fundum hana fyrir rest og tékkuðum á þessari linsu, okkur til mikilla vonbrigðra þá var hún ekki til, en hefði komið í dag eða eitthvað, rosalega fúlt. Þannig að við snerum bara við og ákváðum bara að hanga í Gautaborg þangað til lestin myndi fara um kvöldið. Við fórum í miðbæinn þá með sporvagni Ullandi, það var nú bara alveg eins og að fara með strætó á Íslandi, svona lélég sæti og allt hrátt (annað en í strætóunum sem voru þarna, það voru bara rútur með þriggja punkta belti og allt) , annars var frekar pirrandi að vera í sporvagninum Ullandi hann stoppaði á kannski hálfsmínútna fresti, alveg ótrúlegt.

En við komumst í miðbæinn og kíktum aftur í þessa verslunarmiðstöð og fórum í einhverja hobbý búð sem að við sáum áður en við fórum á hinn staðinn og Hörður og Oddgeir höfðu séð einhverja fjarstýrða skriðdreka sem geta skotið kúlum og svoleiðis , svona einskonar loftbyssa. Jæja þeir keyptu sér svo eitt stykki hvor eftir langa umhugsun hehe Ullandi

En svo var bara orðið svo stutt í að við færum að við fórum bara á lestarsporið að bíða eftir lestinni sem kom ekkert svo löngu seinna.
 Lestin kom og var þetta allt öðruvísi lest en við höfðum farið í um morguninn. Pínkulítil borð og svoleiðis. Svo stoppaði þessi lest líka mikið oftar þannig að við vorum um 3 tíma á leiðinni heim.

Um 20 mín í 11 um kvöldið komum við svo til Lund, allir orðnir frekar þreyttir og var ég allavega ekki að nenna að hjóla heim. En ég komst þó Ullandi eftir mikið puð því að það er svona flest upp í móti á leiðinni úr miðbænum. Síðan var bara farið beint að sofa enda var ég alveg að drepast úr þreytu. 
 

Svo til að koma einu svolítið skondnu að Ullandi, í Gautaborg voru svona undirgöng til að labba í gengum, og tengdið það eiginlega lestarstöðina og verslunarmiðstöðina. Við vorum að fara út úr verslunarmiðstöðinni og inn á lestarstöðina. Ég var fremst og ætlaði bara að ýta í glerið til að opna hurðina, ég allavega sá ekki annað en að það væri gler en svo var ekki, ég einhvern veginn klessi á hurðina og hefði getað brotið rifbein eða eitthvað svo mikið var höggið á þeim stað. En svo var ekki en er ég hrikalega aum þar. Og til að bæta þetta hjá mér, þá voru fleiri að klessa á þetta þar sem að það sást ekki að það væri ekki gler frá annnarri hliðina Óákveðinn 
 

Í dag er ég svo að drepast í öllum skrokknum eftir hjólið og labbið í gær. Enda verður bara tekið því rólega í dag og spilað og svoleiðis enda meika ég ekki annað. En annars fóru Oddgeir og Hörður í bæinn að skoða þessa linsu, Hörður ætlar örugglega bara að kaupa hana hérna því að hann þarf eiginlega að prufa hvort að hún virki rétt því að það getur víst bara skipt máli á milli eintaka hvort að hún sé góð eða ekki. En ég hef bara hangið heima allann daginn Ullandi Sem er bara ágætt því að ég er alls ekki að nenna út eitthvað að hjóla.
 


Blogga meira seinna Brosandi

Herdís Eva Hermundardóttir
Engin athugasemd

Svíþjóð :D

31. mars 2007 klukkan 17:50

Jæja kraftaverkin gerast enn Ullandi

En ég ákvað að blogga svona til tilbreytingar þar sem að ég hef ekki gert það í ÓRALANGAN tíma Ullandi

en ástæðan fyrir þessu skyndilega bloggi er ferð mín til Svíþjóðar, ég bara virðist vera duglegri að blogga í öðrum löndum sýnist mér Ullandi

 

Jæja ferðin hófst þann 29. mars þegar maður vaknaði 4 um nóttina til að hafa sig til fyrir ferðina út á flugvöll, þar var maður síðan gegnumlýstur (eða kannski frekar farangurinn Ullandi)og held að fólkið þar hafi fundist skrítið að sjá lager af páskaeggjum sem við höfðum með í handfarangrinum Ullandi vildum nefnilega ekki að þau kæmu mölbrotin til Svíþjóðar. Við sluppum í gegn með þau þrátt fyrir augnatillit frá starfsfólki Ullandi

 
Jæja í fluginu var svo boðið upp á eitthvað sem er eins og eggjabúðingur, en á að vera ommiletta með skinku, allavega er þetta hreinn viðbjóður og borðaði maður því ekki mikið nema þá bara brauðið sem er það skást af þessu öllu saman. Jæja við komumst svo alla leið og fórum að nota okkar miklu kunnáttu í að rata um flugvöllinn Ullandi sem er nú ekki erfitt þar sem að auðvitað eru fullt af vegvísum um allt og svo sá maður Glitnis auglýsingar og Kaupþings auglýsingar þannig að maðurvar bara alveg eins og heima Ullandi Eftir það hófst langa biðin eftir farangrinum Ullandi ,við fundum nefnilega færibandið fyrir rest, en ekki sást farangurinn í alveg 20 mín eða meira, það er ekki gaman að bíða  endalaust eftir farangrinum sínum. En hann kom samt fyrir rest og var þá haldið út til að heilsa upp á Sigrúnu sem kom á völlinn til að hjálpa okkur heim til þeirra og svoleiðis Ullandi. En við fórum í lestina , fórum yfir risabrú og komum svo á endanum til Lund. Þar var svo haldið í strætó á leiðarenda og skal ég segja ykkur að strætó og fullt af ferðatöskum passa ekki saman.  Jæja við fórum í bæinn þennan fyrsta dag og leigðum okkur hjól og kíktum í nokkrar búðir.  En meira um þessi hjól, þetta eru skærgul hjól, með mjóum dekkjum, kröfu á stýrinu og bögglabera og svoleiðis. Rosalega smart. Annars eru þetta nú ekki slæm hjól miðað við hjól sem maður er að sjá hérna úti Óákveðinn, fólk er stundum á bara einhverjum hjólum sem maður bíður eftir að detti í sundur af riði. Þetta er ekki eins og heima, allir á rosalega flottum hjólum, hérna þykir bara fínt að vera á drusluhjóli enda eru hjólin hérna mjög dýr skilst mér. En ég skal segja ykkur það að þótt að það séu engar teljandi brekkur hérna þá er samt erfitt að hjóla fyrir manneskju sem er í engri æfingu hehe :P.



Annar dagurinn byrjaði með því að maður svaf eins og rotaður selur langt fram á dag Skömmustulegur, enda kannski smá skiljanlegt, farið var að sofa seint og maður ekkert búinn að sofa í langan tíma Ullandi. En annars við forum í bæinn á “flottu” leiguhjólunum með Oddgeiri og Sigrúnu. Til að gera langa sögu stutta þá sprengdi Hörður 2 dekk á tveimur hjólum (fékk nýtt og svo aftur nýtt Ullandi ) og til að toppa allt þá gaf einhver fugl skít í hann. Veit ekki hvað kallarnir í hjólaleigunni hafi haldið eiginlega, koma þarna með kannski 30-60 mínútna millibili að fá nýtt hjól Ullandi

 
Það sem eftir var af þeim degi gekk áfallalaust fyrir sig Ullandi svo var borðuð nautasteik og svoleiðis. Ekkert smá sem svoleiðis dótarí er ódýrt hérna úti. Miðað við heima, kostar bara hönd og fót að fá sér nautasteik Óákveðinn. Annars var svo spilað fram á nótt eitthvað spil sem heitir Settlers, ekkert smá skemmtilegt spil og það má alveg segja það að Oddgeir hefur rústað okkur í 5 leikjum af 6 sem við höfum spilað, Hörður hefur unnið einu sinni og ég hef ekki verið nálægt því að vinna hehe Ullandi.  Í dag aftur á móti var vaknað fyrr en í gær. Farið af stað að hjóla (og maður komin með auman rass eftir þetta allt saman hehe Ullandi ) og farið niður í bæ að skoða háskólasvæðið og svoleiðis. Og það var svo gott veður í dag að allir voru úti liggur við, syngjandi og dansandi Ullandi, og maður fékk nettan 17. júní fýling þar sem að margir voru með gasblöðrur. Svo skyldi maður bara hjólið eftir við eitthvað hús kyrfilega læst og svo var bara labbað niður í einhvern trégarð (man ekki nafnið í augnablikinu Ullandi )  skoðuðum akurhænur, hænur og páfagauka sem voru í einhverju búri þarna.

En rosalega er bara komið sumar hérna, hiti og sól, allt orðið grænt og allt í blómum, öll skordýr farin að vakna til lífsins, við sáum t.d stór fiðrildi, eitt var rosalega fallegt rautt/appelsínugult, eitt var alveg neon gult og svo voru einhver fleiri fiðrildi og maríubjöllur á sveimi. Og svo þar sem að öll þessi kvikyndi eru vöknuð þá náttúrulega vakna geitungar og hunangsflugur líka (þessar stóru og loðnu Ullandi ). Og engar svaka hlussuhunangsflugur Hissa, allavega hleypur Hörður hérna um allt frá þessu, hefur líka hent hjólinu sínu niður vegna þessa Ullandi Sigrún gerir það líka þannig að þau eru tvö í þessum bransa Ullandi. Oddgeir ætti að reyna að ná video af þessu hjá þeim, og þá sérstaklega af Herði Ullandi. Hann hljóp einhverja svaka vegalengd út af það var smá (stór) hunangsfluga langt frá honum Ullandi. Ég er ekki svona slæm, ég stend nú bara kyrr þó að mér sé ekki vel við þetta samt. Svalur 
 


Jæja í kvöld verður líklega spilað eitthvað, og er maður svona að vonast til að vera einhversstaðar nálægt því að vinna en held samt að það gerist ekki Ullandi allavega ekki miðað við hvernig hefur gengið undanfarið.  
 


Skrifa meira seinna Brosandi
sem verður samt örugglega bara á morgun eða næsta dag Brosandi

Herdís Eva Hermundardóttir
2 athugasemdir

18 ára í dag :D

10. desember 2006 klukkan 05:14

Þar sem að bloggið var líst dautt þá ætla ég að reyna að lífga það smá við með smá bloggi Brosandi

Jæja þá er maður loksins orðin 18 ára Hlæjandi  En dagurinn hefur verið svona að ég hef ætlað að læra eitthvað smá en svo hef ég ekki nennt því hehe. En ég fór samt í klippingu í morgun og er hárið á mér alveg svaka fínt núna Hlæjandi Svo fékk ég pening frá ömmu og rosalega fallegt hjartahálsmen frá Herði Hlæjandi


Annars er nú ekki svo mikið að frétta af mér. Eða jú kannski aðeins Ullandi

Það er nefnilega búið að vera að flísaleggja hérna síðan pabbi fór í "frí" Óákveðinn, en hann var svaka duglegur og keypti flísar og ætlaði bara svona rétt aðeins að flísaleggja eldhúsið en svo varð það meira og er núna bara eftir stofan sjálf. Alveg rosalegt sem að allt breytist við þetta, ekki lengur þetta gráa teppi og haugar af hundahárum sem þarf liggur við að plokka upp hehe. Svo fór hann bara að byggja við vegg líka þar sem að mamma ætlar að setja skáp og svoleiðis. Hann varð bara ofvirkur í fríinu hehe Ullandi


Svo var ekkert hægt að skreyta vegna drasls sem blockaði alla glugga og svoleiðis en við Hörður tókum okkur til núna í kvöld og settum eina seríu í stofugluggann , þar sem að hægt var að færa drasl frá þar sem að pabbi er farinn á sjóinn og ekki jafn mikið drasl allastaðar hehe.


En skólinn já. Það fara bara að byrja próf hjá mér. Fer í fyrsta prófið á þriðjudaginn og er það Lífmælingar, sem er leiðinlegasta fag sem um getur. En svo er það Dýrafræðin sem ég vona að ég nái og svo eru grasafræði og efnafræði


Ég er búin að ákveða það að fara ekki í skóla eftir áramót þar sem að ég er komin með alveg þvílíkan leiða á skólanum og nenni ekki þessu heimalærdómsdótaríi lengur í bili. Fer bara að vinna og fá smá peninga Svalur Get þá gert það sem ég vil eftir vinnu en þarf ekki að fara að læra eða eitthvað svoleiðis.

En stefni á að fara í skólann aftur í haust og klára það sem ég á eftir (eða næ ekki) þetta haustið þar sem að ég stefni á að ná tveimur prófum núna (svo er spurning hvort að ég næ því Ullandi ) En ætla að reyna að ná Lífmælingum og Dýrafræði og ég hlít að ná Dýrafræðinni þar sem að ég hef verið að skoða gömul próf og finnst mér að ég ætti að geta svarað einhverju af svona spurningum.

Við hvað ég ætla að vinna eftir áramót veit ég bara alls ekki. En er samt farin að skoða svona og það er um margt að velja hehe, bara spurning hvað maður vill gera. En ætla samt ekki að byrja fyrr en eftir jól svo að ég þurfi ekki að vera að vinna um jólin.

Úff hvað mér finnst Lífmælingar svo leiðinlegar að ég nenni ekki einu sinni að læra fyrir próf í því hehe Ullandi en ég fæ sem betur fer að hafa bókina með mér en hvort að hún hjálpi eitthvað er ég ekki viss um þar sem að hún er á útlensku.

En svo var ég í verklegu prófi í Grasafræði fyrir viku (á laugardegi) og fannst mér það bara nokkuð erfitt. En þá átti ég að skýra fullt út á aldini og blómi og svoleiðis en aldinið var svo skrítið að ég sá varla neitt sem ég átti að reyna að sjá Óákveðinn og svo voru 2 smásjársýni og þarf maður að teikna frumugerðir (og merkja inná)  og svoleiðis og eina sem maður sér á þessu eru fullt af mislitum punktum hehe Ullandi en ótrúlegt en satt þá fékk ég 7.5 í þessu prófi sem er meira en ég hélt að ég myndi fá. Vonandi mun mér bara ganga svona vel í hinum prófunum en er samt ekki svo bjartsýn með það Þögull sem gröfin

Annars er ekki meira að frétta núna og ég ætla ekki að lofa að það líði ekki svona langt á milli þar sem að ég á örugglega ekki eftir að standa við það en svo er það svo týpískt að núna fari ég allt í einu að blogga vel hehe Ullandi

Herdís Eva Hermundardóttir
2 athugasemdir

Mikið að gera :(

26. október 2006 klukkan 21:12
Vá hvað það er komið langt síðan að ég bloggaði síðast Skömmustulegur gengur ekki svona leti.

 Annars er maður bara alltaf í skólanum að læra Ullandi svo að læra aðeins meira heima þó að ég sé mikið latari við það. Tölvan virkar alltaf svo mikið skemmtilegri heldur en lærdómurinn og svo ef að maður er orðinn þreyttur á tölvunni þá tekur sjónvarpið bara við. Er ekki alveg að fíla þessi leti í mér því að ég er komin frekar langt á eftir, skil ekkert í efnafræði og lífmælingum og er komin langt á eftir að lesa í hinum tveimur.

Lífmælingar eru ekki alveg að gera sig fyrir mér eins og ég hef sagt áður  UllandiKennarinn í verlegu æfingunum er líka svo hrikalega leiðinlegur og mér finnst alltaf eins og hann sé að gefast upp á manni og hugsi bara hvað maður er alveg hrikalega heimskur að skilja ekki neitt í þessu.

Síðan er ég komin með annan kennara í fyrirlestrunum í Lífmælingum og var hann alltaf að segja ok eftir hvert einasta orð en ég hef barista ekkert tekið eftir því. Hann hefur örugglega bara hætt með þennan kjæk. Annars skil ég nú ekkert meira hjá honum þó að hann hafi hætt þessum leiðindakjæk Ullandi


Verklegu tímarnir eru nú bara mjög fínir. Höfum verið að kryfja fiska síðustu 4 vikur í dýrafræði, first var krufin skata og síðan til að sjá samanburð á beinfiskum og brjóskfiskum þá krufum við líka bleikju. Síðan eigum við eftir að kryfja frosk, rottu og lunda. Í Grasafræðinni er þetta meira svona að við skerum eitthvað örþunnt sýni af stöngli eða laufblaði og skoðum það aðeins og svo teiknar kennarinn bara allt upp á töflu og segir okkur hvað við eigum að merkja inná og svo fær maður skýrslurnar aftur með athugasemdum eins og fínar teikningar og svoleiðis (sem var nú bara teiknað upp eftir kennaranum hehe Ullandi ) þannig að já maður þarf ekkert að gera svo mikið sjálfur en svo er reyndar próf í þeim áfanga og kvíður mig frekar mikið fyrir því hehe.

Ég er byrjuð í verklegu í efnafræði ef að það hefur ekki komið hérna áður Ullandi

En þá erum við að gera allskonar tilraunir að blanda saman sýrum og svoleiðis. Og vitið hvað við áttum að koma með þvag úr okkur sjálfum í síðasta tíma  Þögull sem gröfin  Vorum að efnagreina það og svoleiðis. Var ekki alveg að gúddera þetta first, fannst þetta eitthvað svo skrítið en svo var þetta ekki eins slæmt og maður hefði haldið. Síðan höfum við bara verið að blanda saman venjulegum efnum sem tengjast líkamsvessum ekki neitt Ullandi


Ég er alveg hrikalega orðin í umferðinni. Pabbi ákvað að setja nagladekkin í fyrradag þar sem að það var spáð snjókomu og svoleiðis. En já fór ég ekki af stað um morguninn í skólann og keyrði framhjá á leiðinni þremur lögreglumönnum sem stóðu fyrir utan bílinn (en einn var reyndar að tala við mann sem var örugglega verið að stoppa) og ég keyri þarna framhjá á kolólöglegum nagladekkjum (á þessum tíma) og varð þvílíkt stressuð og stuttu sienna keyrði ég yfir á gulu á myndavélaljósum Þögull sem gröfin þá varð ég enn stressaðari hehe. Svo gerðist það í morgun að ég keyrði aftur yfir á gulu á öðrum myndavélaljósum, vonandi á ég ekki von á tveimur myndum í pósti af mér og mikilli segt og punktum. Er svo ekki að gúddera það hehe Ullandi . Ætla að passa mig meira að keyra ekki svona yfir á gulum ljósum þegar það eru myndavélar (en ég geri það samt ekki venjulega, er mjög löghlýðin)

Jæja mamma fékk þá snilldarhugmynd að fara að taka allt niður af háaloftinu og fyllti herbergið hjá Elísu (systir mín) síðan ákvað hún að það væri snilldarhugmynd að fara að mála herbergið svona þar sem að það var búið að fylla það af drasli. Það var keypt málning en ekki enn búið að mála vegna plássleysis til þess Ullandi væri fínt herbergið ef að það væri bara málað í kringum draslið hehe Ullandi svona falleg fjöll á veggnum.


Svo er ég komin með ný gleraugu. Lét loksins verða af  því að fá sér ný gleraugu með sterkari glerjum. Enda var ég nú bara að verða blind Ullandi. En fór í Hagkaup í skeifunni og þar er svona frí gleraugu til 18 ára aldurs, og var því fínt að nýta það áður en maður verður gamall Ullandi En þá fékk ég títaníumumgjörð (vegan ofnæmisins) og svo þurfti bara að borga glampavörnina á glerjunum. Síðan fékk ég líka sólgler yfir ,nauðsynlegt þegar maður era ð keyra, alveg hrikalegt að keyra á móti sólinni núna því að hún er alltaf svo lágt á lofti.

Annars er rosalega lítið annað að frétta, geri varla annað en að hanga heima og læra (eða að reyna það Ullandi ) svo í skólanum. Er bara ágætlega lengi í skólanum alla daga nema á föstudögum þegar ég er bara til 11:30. ekkert smá þægilegt að vera búin svona snemma á föstudögum.


Annars er ég búin að segja allt sem ég hef að segja hehe Ullandi

Ætla núna að hafa styttra á milli blogga Ullandi gengur ekki svona bloggleti hehe Ullandi (svo stend ég örugglega ekki við þetta eins og alltaf Skömmustulegur

Herdís Eva Hermundardóttir
5 athugasemdir

HÍ og bandý :P

26. september 2006 klukkan 00:01

Jæja loksins er ég komin aftur og með nýtt blogg Brosandi

Eins og ég er búin að segja áður í blogginu er ég byrjuð í HÍ og er þetta held ég 4 vikan sem ég er að byrja núna hehe.
En annars er ég byrjuð í öllu nema í verklegu í efnafræði, það þurfti að byrja eitthvað svo seint eða 4.okt Óákveðinn 
Annars eru fyrirlestrarnir mjög fínir nema í Lífmælingum hehe. gæti rotnað í þeim tímum. Þeir tímar eru sérstaklega slæmir þegar við erum í Aðalbyggingunni í tíma því að þar er klukka beint fyrir framan mann og líða mínúturnar ansi hægt. Svo er þetta líka svo drepleiðinlegt efni.

Mér finnst grasafræðin og dýrafræðin skemmtilegust. En kennslan í grasafræðinni betri þar sem að það kom einhver kona að kenna dýrafræðina og kennsluaðferðir hennar eru kolrangar. En þær samanstanda af því að hún stendur þarna fyrir framan okkur og les heilu ritgerðirnar af blaði Óákveðinn Þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það er ömurlegt að hlusta á þetta og maður nær engum glósum varla og maður man ekki neitt sem hún segir enda er hún liggur við að lesa fyrir okkur bókina.

Efnafræðin er svolítið flókin, mér finnst ég vera sú eina sem skil ekki neitt í þessu og það er ekkert sérlega þægilegt en ég nær að krafla mig framúr einhverju af þessum dæmum sem við þurfum að gera.

Verklegu tímarnir eru nokkuð skemmtilegir (nema þeir í Lífmælingum Ullandi ) Við erum mest megnis núna að skoða smásjársýni í dýrafræði og svo einhverja þörunga og sveppi í grasafræði en skýrslan úr þessu tvennu eru bara að teikna það sem við sjáum og merkja inn á og skila svo í lok tímans, ég er mjög fegin að þetta sé bara svona því að þá bætist engin heimavinna við. Síðan byrja krufninar í dýrafræði í næstu viku, hlakka mikið til þess Hlæjandi

Einnig hef ég komist að því að mjög margir í bekknum mínum ætla í dýralækninn Hissa Það er frekar slæmt þar sem að það verða þá minni líkur fyrir mig að komast inn úti Gráta en vona samt að það takist Brosandi

Jæja eitthvað úr daglega lífinu
Svo langt síðan ég bloggaði síðast að ekki einu sinni nein afmæli eru komin inn, eða jú reyndar Elísu en ekki hinna.

En mamma,Sævar og Týra áttu afmæli þann 7.sept Hlæjandi og svo Elísa þann 24.Ágúst. Allir í fjölskyldunni sem sé búnir að eldast um eitt ár nema ég og pabbi hehe.

Síðan eru amma og afi á Spáni í hitanum og munu koma núna á fimmtudaginn Hlæjandi en annars voru foreldrar Harðars einnig á Spáni og bróðir hans Harðars var þar líka, komu smá brún heim Ullandi En annars bóka ég það að amma og afi koma svört heim enda liggja þau bara í sólbaði alla daginn í 3 vikur, getið ýmindað ykkur að maður fái ekki smá lit af svoleiðis hehe.

Annars var ég bara að fatta að ég hef voða lítið að tala um, maður er bara að læra alla daga eða í skólanum, gerist eitthvað voða lítið, nema það að ég prófaði að fara á bandýæfingu á fimmtudaginn, það var rosalega gaman en rosalega harðsperrur fékk ég daginn eftir Þögull sem gröfin bara svoleiðis allstaðar, algjör hryllingur og er ég liggur við enn að þjást af harðsperrum mörgum dögum seinna en ég stefni á að fara með Herði aftur á æfingu fannst þetta nefnilega bara rosalega gaman. Og haldiði ekki að Hörður hafi verið svo góður og keypt handa mér 5 þús kr buxur fyrir bandýið hehe. En vantaði einhverjar buxur annað en gallabuxur þannig að hann fór bara í það og keypti þær handa mér.Brosandi

Annars hefur ekkert meira gerst síðustu vikur
Blogga meira seinna og lofa að hafa ekki svona hrikalega langt á milli Skömmustulegur

Herdís Eva Hermundardóttir
3 athugasemdir

Háskóli Íslands :)

03. september 2006 klukkan 04:53
Jæja vegna fjölda áskoranna kemur hérna annað blogg Svalur

Ég er núna byrjuð í Háskóla Íslands sem er nú bara ágætlega stórt skref í lífinu hehe. Jæja þetta byrjar vel hjá mér.

En annars er ég í líffræðinni sem ég hef ágætan áhuga á. Ég er í Öskju sem er nýja húsið sem háskólinn er með og er þetta bara rosalega fínt hús með góður stórum fyrirlestrasal og svoleiðis. Ég verð svolítið mikið í skólanum þar sem að í raunvísindadeildinni er víst mikið verklegt þannig að ég þarf að mæta í alla verklegu tímana enda skyldumæting og gera allskonar tilraunir og svoleiðis og ekki nóg með það þá þarf ég líka að skila einhverjum rosa skýrslum úr þessum 4 fögum sem ég er í Þögull sem gröfin svo ekki sé minnst á bækurnar Þögull sem gröfin en þær eru hnausþykkar á fræðiensku og jább þarf að lesa þær eiginlega allar, sem sé alveg mjög margar bls á dag hehe.

Ég er nú bara búin að vera ágætlega dugleg að læra svona þessu fyrstu viku Ullandi Er ekkert á eftir en ég er reyndar ekki byrjuð í nema þremur fögum, eitt fangið er semsagt ekki byrjað. Dýrafræðin á eftir að byrja en byrjar núna á þriðjudaginn. Ekkert smá skrítið hvað fögin byrja ekki á sama tíma, t.d byrjaði ég eiginlega strax í efnafræðinni og Lífmælingunum en er líka búin að fara í tvo tíma í grasafræði en svo byrjar verklegt í efnafræðinni ekki fyrr en 4 október og verklegt í dýrafræðinni ekki fyrr en 11 september og svoleiðis. Afhverju getur ekki bara allt byrjað í sömu vikunni Óákveðinn Þetta er of ruglinslegt og maður þarf að muna hvenær maður er að byrja í þessu og hinu en þetta er svo sem allt að byrja þannig að þetta reddast hehe.

Annars er ég búin að komast að því að Lífmælingar eru ömurlegar. Bókin er leiðinleg og leiðinlega uppsett og námsefnið er óskiljanlegt, eða allavega á ensku. Svo er þetta reyndar svolítið líkt tölfræði þannig að þá skánar þetta pínkulítið þar sem að ég skil sum tákna sem koma þarna fyrir en ég skil samt ekkert textann sem er á undan táknunum Saklaus Verður eitthvað skrautlegt hjá mér sá áfangi, mikið skilningsleysi í gangi þar.
Mér gengur ágætlega að skilja grasafræðina og efnafræðina. Í grasafræðinni erum við sem stendur að tala um sveppi og þörunga hehe, svona svo að þið getið fylgst með. En í efnafræðinni erum við bara að læra liggur við grunnskólaefnafræði. Allavega er þetta rosalegur grunnur enda var ég að lesa um lotukerfið og svoleiðis, og úr hverju atóm væru gerð og svoleiðis. En jæja það er ágætt að skilja eitthvað í þessu svona fyrst um sinn áður en þetta fer að þyngjast eða ég býst sterklega við því að þetta þyngist eitthvað mikið, þar sem að maður er komin í háskólann.

Svo er ég að spá í að taka eitt ár í líffræðinni og prófa svo að sækja um í dýralæknaskólanum í Danmörku, það sakar ekki að reyna allavega Brosandi En þetta er svona smá pæling sem ég er að hugsa um.

En annars  þetta er ágætt nema þessar Lífmælingar, ég veit ekki einu sinni út á hvað það gengur hvað þá meira Óákveðinn

Blogga meira um háskólalífið seinna Svalur  (en mér hefur skilist að það sé lestur og drykkja Tala af sér sem ég btw er ekki að fara út í hehe, læt lesturinn og heimanámið duga )
Herdís Eva Hermundardóttir
3 athugasemdir

Ömurlegt fólk í gulum vestum á menningarnótt

21. ágúst 2006 klukkan 22:30
Jæja mest lítið hefur gerst síðustu daga annað en það að ég fór að sjá flugeldasýninguna á Menningarnótt.

En smá pæling afhverju í ósköpunum heitir þetta Menningarnótt Óákveðinn Öll dagskráin er um daginn og svo smá fram á kvöld, það er ekkert að gerast um nóttina nema drykkjulæti og vesen en kannski er það íslenska menningin , hver veit.

Annars já var farið þarna að sjá þessa flugeldasýningu en ég fór með Herði og Elísu. Farið var ágætlega snemma af stað til að missa ekki af þessu og þannig. En til að lenda ekki í veseni á bílnum (t.d að komast ekki burt að svæðinu og svoleiðis) þá lögðum við hjá vinnunni hans Harðar. Þar fengum við stæði sem var ekkert langt frá.
Þegar við komum að grjótgarðinum settumst við bara á steinana þó að það væri eitthvað svona band þar sem að fólk átti að vera fyrir utan. En annars settust nú flestir á steinana enda þurfti maður að bíða í um hálftíma eftir að þetta byrjaði.

síðan byrjaði loks sýningin og jæja byrjuðu þá ekki einhverjir öryggisverðir eða hvað sem þetta var að reka fólk í burtu af steinunum og reka það aftur fyrir bandið Óákveðinn stóðu þeir dágóða stund fyrir öllu þannig að maður sá ekkert af sýningunni, síðan voru einhverjir sem vildu ekki færa sig og var þá kallað á 3 lögreglumenn sem stóðu síðan fyrir hinum helmingnum af sýningunni liggur við.
Rosalega var ég pirruð þar sem að eftir að við vorum rekin burt þá var hætt að reka burt af steinunum þannig að bara fólk þarna rétt hjá sat allan tímann. Skil ekki hvað þeir voru að pæla. Afhverjum máttum við ekki sitja á steinunum, bara fólkið 2 metrum lengra. Og hverju skipti það hvort að við sætum 1 metra framar (nær flugeldunum) eða stóðum í kremju aftan við bandið Óákveðinn og fullt af öryggisliði stóð fyrir. Allavega var ég alveg hrikalega pirruð á þessu, algjöri fávitar þessir lögreglumenn og bara allt þetta lið sem var í gulum vestum. Öskrandi

Annars byrja ég í skólanum 28.Ágúst Svalur er orðið eitthvað svo stutt í það Hissa

En hef þetta nóg í bili Brosandi
Herdís Eva Hermundardóttir
5 athugasemdir